Varamaður tekur þingsæti

1. fundur
Mánudaginn 04. október 1993, kl. 13:41:01 (6)

           [13:45]
     Aldursforseti (Matthías Bjarnason) :
    Borist hefur eftirfarandi bréf, dags 28. sept. 1993:
    ,,Þar sem ég verð fjarverandi 3.--17. október nk. vegna opinberra erindagerða í Kína óska ég eftir því að varamaður minn, Svanhildur Árnadóttir, taki sæti mitt á Alþingi á meðan.
Virðingarfyllst,

Halldór Blöndal.``


    Svanhildur Árnadóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til þingstarfa.