Varamaður tekur þingsæti

7. fundur
Fimmtudaginn 07. október 1993, kl. 10:32:01 (69)

[10:31]
    Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Borist hefur eftirfarandi bréf til forseta Alþingis, dags. 7. okt. 1993:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska eftir því að 1. varaþingmaður Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Jónas Hallgrímsson framkvæmdastjóri, Seyðisfirði, taki sæti á

Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.

Jón Kristjánsson, 2. þm. Austurl.``


    Jónas Hallgrímsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er nú boðinn velkominn til starfa.