[13:44]
Gísli S. Einarsson :
Frú forseti. Með leyfi forseta vil ég vitna í svar fyrrv. fjmrh., núv. hv. 8. þm. Reykn., varðandi það hvað sé ómæld yfirtíð. Ómæld yfirtíð telst vera í því svari ,,metin yfirvinna``. Þetta er til skýringar. Ég tel að það sé nauðsyn að vekja máls á því sem hér er til umræðu vegna þess að það er alkunna að verulegur hluti launa starfsmanna hjá opinberum aðilum er greiddur sem yfirvinna án þess að það liggi á bak við stimplun eða sérskráður tími. Það er líka ástæða til þess að ætla að slíkar launagreiðslur hafi veruleg áhrif á almenna launasamninga og geti beinlínis verið til þess að launakjörum lægra launaðra stétta sé haldið niðri með tiltölulega lágum launum viðmiðunarstétta. Ómæld yfirvinna ofan á lágt grunnkaup er einmitt til þess að halda niðri lágum launum ákveðinna stétta.
Ég tel að nauðsynlegt sé að það verði varpað skýru ljósi á staðreyndir þessa máls. Það er mín skoðun að grundvöllur íslensks launakerfis sé mjög brenglaður vegna yfirvinnugreiðslna á grundvelli óstimplaðs tíma.
Til viðbótar þessu er einnig rétt að geta þess að enn fremur viðgengst sá háttur sumra stofnana að greitt er orlof á ómælda yfirvinnu sem hlýtur að teljast ósvinna, þar sem ómæld yfirvinna fylgir orlofslaunum starfsmanna. Ég tel að þetta mál verði að rannsaka ofan í kjölinn. Vandinn er bara sá, hvar á að finna aðila sem geta leyst þá vinnu af hendi?