Auglýsingar ríkisins og stofnana þess

10. fundur
Mánudaginn 11. október 1993, kl. 17:18:42 (162)


[17:18]
     Jóhannes Geir Sigurgeirsson :
    Virðulegi forseti. Varðandi athugasemd hv. 3. þm. Reykn. um að það hafi verið mikil framför hvað

þetta snertir í núv. ríkisstjórn frá því sem var áður þá veit ég ekki alveg hvað hann á við. Þessi ummæli hans benda hins vegar til þess að hann lesi ekki Alþýðublaðið.