Fjárlög 1994

11. fundur
Þriðjudaginn 12. október 1993, kl. 13:34:06 (173)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir):
    Borist hefur bréf frá formanni þingflokks sjálfstæðismanna með ósk um að ræðutími við þessa umræðu verði tvöfaldaður. Það þýðir að hæstv. ráðherra hefur 60 mínútur í fyrsta sinn, 30 mínútur í annað sinn og 10 mínútur í þriðja sinn, en þingmenn hafa þá 40 mínútur í fyrra sinn og allt að 20 mínútur í það síðara.