[15:54]
Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Þegar rætt er um þjónustugjöld þá verða menn að hafa það líka í huga að þjónustugjöld hafa hækkað og lækkað. Ég fann t.d. ekki fyrir því að hv. þm. ræddi um að þjónustugjöld vegna Hafrannsóknastofnunar hafa lækkað þar sem Hagræðingarsjóðurinn hefur verið lagður niður. Ef við viljum vera sanngjörn þá verðum við auðvitað að nota samtölur í heilu lagi þannig að ég vil koma þeirri ábendingu til hv. þm. Það er enginn vandi að velja eitt eða tvö ár úr eins og hv. þm. gerði og þær tölur
sem hv. þm. fór með eru án efa réttar. En það breytir því til að mynda ekki að halli á ríkissjóði varð verulegur árið 1988 og 1989 og var meiri 1991 en hann verður líkast til í ár þrátt fyrir miklu erfiðari efnahagsaðstæður eins og fram hafa komið. En með því að velja árið 1990 þá er hægt að finna hagstæðasta árið og það er einmitt það sem fyrrv. fjmrh. hefur gert. Það verður dálítið spaugilegt og skemmtilegt í framtíðinni ef fjármálaráðherrar á hverjum tíma geta alltaf valið uppáhaldsárið sitt, þegar þeir gátu skóflað aftur fyrir sig og fram fyrir sig eins og hæstv. ráðherra var þekktur fyrir að gera. Það gekk meira að segja svo langt í eitt skipti að hann innheimti tekjur næsta árs fjórum dögum eftir að frv. var samþykkt á milli jóla og nýárs. Það var þegar hann innheimti tekjur af Aðalverktökum sem frægt er orðið til þess að sýna betri útkomu ársins 1990 heldur en 1991. Þannig voru vinnubrögðin þá, þannig eru þau ekki lengur.