Fjárlög 1994

11. fundur
Þriðjudaginn 12. október 1993, kl. 16:54:54 (194)


[16:54]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Við höfum hér heyrt að hv. varaformaður fjárln. veit hvað það er sem hann vill hafa að markmiðum við afgreiðslu og vinnu í fjárln. Eitt af því sem hann sagði hér áðan var að hann taldi þurfa að hafa það markmið við afgreiðslu fjárlaga að þar væri stuðningur við vísinda- og þróunarstarf. Og ég vil þá spyrja hv. varaformann fjárln., hvar er það skilgreint í þessu fjárlagafrv. hvernig standa á við þau markmið?