Fjárlög 1994

11. fundur
Þriðjudaginn 12. október 1993, kl. 20:23:22 (226)


[20:23]
     Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég vissi nú ekki um þessa bókun hjá sjúkraliðum á Ríkisspítölum. En ég vil að það komi hér fram að sú breyting hefur orðið á að nú hefur verið stofnað Sjúkraliðafélag Íslands sem fer með samningsrétt sjúkraliða. Við það félag hefur verið gerður nýr samningur og ég kannst ekki við að það sé nein bókun með þeim nýja kjarasamningi, sem mig minnir að hafi tekið gildi fyrr á þessu ári eða seint á því síðasta.