Leyfi setts framkvæmdastjóra ríkissjónvarpsins

12. fundur
Miðvikudaginn 13. október 1993, kl. 13:51:03 (244)

[13:51]
     Ingibjörg Sólrún Gísladóttir :
    Virðulegur forseti. Ég beini fsp. minni til hæstv. menntmrh. Eins og okkur rekur væntanlega öll minni til þá ákvað menntmrh. á sl. vori að setja Hrafn Gunnlaugsson í embætti framkvæmdastjóra sjónvarps til eins árs því að framkvæmdastjórinn sem þá var fór í ársleyfi. Nú gengur það fjöllum hærra að Hrafn Gunnlaugsson hafi fengið tveggja mánaða leyfi frá stöðu sem hann gegnir tímabundið fyrir annan sem er í leyfi. Nú vil ég spyrja hæstv. menntmrh. hvort þetta sé rétt, hvort honum sé kunnugt um þetta og hvort slíkar leyfisveitingar tíðkist almennt hjá ríkinu.