Bifreiðahlunnindi

12. fundur
Miðvikudaginn 13. október 1993, kl. 14:00:38 (252)

[14:00]
     Sigbjörn Gunnarsson :
    Virðulegi forseti. Ég beini máli mínu til hæstv. fjmrh. Um leið og ég velti fyrir mér ýmsum siðferðilegum spurningum og siðabótaprédikunum ýmissa stjórnmálamanna vil ég spyrja hæstv. fjmrh. hvort hann hyggist taka til endurskoðunar bifreiðahlunnindasamninga sem Ólafur Ragnar Grímsson, þáv. fjmrh., gerði við yfirmenn Lánasýslu ríkisins árið 1990. Jafnframt vil ég spyrja ráðherra hvort honum sé kunnugt um að ráðherrar í núv. ríkisstjórn hafi gert slíka samninga.