[14:01]
Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) :
Virðulegi forseti. Mér er ekki kunnugt um að ráðherrar í núv. ríkisstjórn hafi gert slíka samninga.
Varðandi samning sem gerður var á síðasta kjörtímabili við forstjóra og aðstoðarforstjóra Lánasýslu ríkisins, en sá samningur var gerður að mig minnir 1990, er frá því að segja að hann mun að sjálfsögðu taka sömu breytingum og aðrir sams konar samningar. Ef ég veit rétt, það eru nú aðrir í salnum fróðari um það en ég, þá tekur sá samningur mið af samningum þjóðhagstofustjóra og samningur þjóðhagsstofustjóra tekur mið af samningi við seðlabankastjóra. Þannig mun þetta vera Einbjörn í Tvíbjörn og Tvíbjörn í Þríbjörn o.s.frv. ( ÁMM: Og Jón Sigurðsson í Sigbjörn.) Það er hann sem spyr hins vegar. En mér finnst það eðlilegt að á sama hátt og viðskrh. hefur skrifað bönkunum bréf, gerði það í fyrradag ef ég veit rétt, og óskaði eftir skýringum á ýmsum hlunnindum bankastjóra þá verða sömu reglur látnar gilda um þá sem heyra beint undir viðkomandi ráðherra.