[15:56]
Petrína Baldursdóttir :
Frú forseti. Ég verð að segja að illa er komið fyrir æðstu menntastofnun þjóðarinnar að þurfa að reka spilakassa, nokkurs konar fjárplógsstarfsemi til að fjármagna starfsemi sína. Um leið er höggvið að rótum meginfjáröflunar líknarfélaga á borð við Rauða krossinn, SÁÁ, Landsbjörg og Slysavarnafélag Íslands. Umrædd félagasamtök hafa nú boðað að þau treysti sér ekki lengur í þá starfsemi sem þau inna af hendi og því langar mig að spyrja hæstv. dómsmrh.: Hvað á að verða um starfsemi á borð við kaup á sjúkrabifreiðum, þjálfun áhafna, hina miklu og góðu vinnu SÁÁ með vímuefnaneytendur og þjálfun björgunarsveitarmanna sem eru tilbúnir að leggja borgurum landsins lið á neyðarstundu allan ársins hring? Svo til allt starf þessara aðila er unnið í sjálfboðavinnu og að baki liggur margra ára þjálfun og reynsla. Er ríkissjóður nú á tímum niðurskurðar og samdráttar í íslensku efnahagslífi tilbúinn að standa undir því sem fellur niður?
Margt af þeirri vinnu sem unnin er fellur undir almannaheill. Það hlýtur að vera í verkahring ríkisvaldsins að tryggja öryggi þegnanna. Þegar vá ber að dyrum eru opinberir aðilar, t.d. lögreglan, engan veginn í stakk búnir til að sinna öllum þeim hjálparbeiðnum sem koma upp víða um land. Því eru í gildi samningar milli almannavarnanefnda og björgunarsveita á viðkomandi stöðum.
Í mínu byggðarlagi eru 4--6 tilfelli árlega þar sem kalla þarf björgunarsveitir til aðstoðar vegna óveðurs og sinna þær um 90% þeirra hjálparbeiðna sem berast og gefur því auga leið mikilvægi þess að hafa vel þjálfað lið. Verði úr að þessi starfsemi falli niður er hætt við að tjón borgaranna verði mun meira en ella. Margt fleira væri hægt að telja upp sem miður færi.
Hæstv. dómsmrh. Er það ekki stundargróði að kippa fótunum undan starfsemi áðurtaldra líknarfélaga en standa uppi með háskóla sem fær fjármagn fyrir starfsemi sína frá spilakössum? Ég skora á hæstv. ráðherra að endurskoða afstöðu sína.