Tilkynning um utandagskrárumræðu

16. fundur
Þriðjudaginn 19. október 1993, kl. 13:47:08 (365)

     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Áður en gengið verður til dagskrár vill forseti upplýsa að upp úr klukkan þrjú verður hér utandagskrárumræða um viðræður íslenskra og bandarískra stjórnvalda um framtíð starfsemi Bandaríkjahers. Er hún að beiðni hv. þm. Ólafs Ragnars Grímssonar.