[16:50]
Sturla Böðvarsson :
Virðulegi forseti. Hér er til umræðu frv. til laga um breytingar á lánsfjárlögum fyrir árið 1993. Ég vil í því tilefni lýsa yfir stuðningi við þetta frv. En ekki síst vegna ræðu hv. 1. þm. Austurl. sem snerist m.a. um þann þátt þessa frv. sem lýtur að heimild til þess að veita Speli hf. lán vegna rannsókna, þá vildi ég leggja áherslu á það að hér er afar mikilvægt mál á ferðinni, það hafa staðið yfir athuganir á hagkvæmni þess að bora göng undir Hvalfjörðinn. Það var stofnað sérstakt félag til þess að vinna að þeim undirbúningi. Ég vil minna á að það var m.a. í tíð fyrrv. ríkisstjórnar, þar sem hv. 1. þm. Austurl. átti sæti, sem gerður var sérstakur samningur við Spöl hf. og ég hef litið svo á að Spölur hafi fulla heimild til þess að vinna að þessum undirbúningi. En nú er komið að því að vinna að rannsóknum sem kosta nokkra fjármuni og þess vegna er leitað eftir þessari heimild.
Ég vil bara í tilefni af þessari umræðu hér og orðum hv. 1. þm. Austurl. leggja áherslu á að þetta fyrirtæki hefur unnið hið ágætasta starf og ég legg ríka áherslu á að ekki verði brugðið fæti fyrir það að fyrirtækið fái lán og hér verði veitt heimild til þess að standa að því með þeim hætti sem frv. gerir ráð fyrir.