[17:00]
Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Út frá ummælum hæstv. ráðherra um það að ef farið yrði í þessa framkvæmd þá yrði að fjármagna það með lánum og taka til þess lán, þá vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Ef það væri niðurstaðan hjá viðkomandi fyrirtæki að framkvæmdin væri arðbær, það sparaðist það mikið í styttri vegalengdum sem menn ækju að ríkið gæti sparað sér verulega fjármuni þannig að ekki þyrfti að endurbyggja allan veginn fyrir Hvalfjörð, telur þá hæstv. ráðherra að út frá þessum forsendum gæti verið eðlilegt að taka
til framkvæmdarinnar lán með bestu kjörum, burt séð frá því hvort sem það væri innlent eða erlent? ( Fjmrh.: Til heildarframkvæmdarinnar?) Já, hvort ráðherra teldi að út frá þessum forsendum gæti það verið eðlilegt að taka til þess lán og jafnvel þó það væri að öllu leyti erlent.