Lánsfjárlög 1993

16. fundur
Þriðjudaginn 19. október 1993, kl. 17:17:13 (419)


[17:17]
     Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég átti hálfrar aldar afmæli í gær og þá sá ég eftir það miklu betur en áður að það fer að styttast dálítið í þessu hjá manni og líklega er vísast að gefa ekki neinar yfirlýsingar fram í tímann. Þegar ég sagði í bráð, þá átti ég að sjálfsögðu við þann tíma sem ég hef einhver áhrif í íslenskum stjórnmálum. Ég get ekki orðað þetta nema svona því að ég veit að við erum sammála um það, ég og hv. þm., að við erum hvorugur eilífur og getum ekki talað þannig að við vitum nákvæmlega hvað gerist um alla framtíð.