[16:19]
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir :
Virðulegur forseti. Ég get ekki annað en þakkað fyrir þessa árvissu fsp. sem Guðrún Helgadóttir flytur hér, hún er sannarlega þörf ef hún mætti verða til þess að ýta við hinni mjög svo sofandi nefnd sem um þetta mál fjallar því að hún hlýtur að vera nokkuð vel sofandi fyrst þetta er búið að vera hér meira og minna til umfjöllunar frá 1986 og hvorki meira né minna en tvær þáltill. hafa verið samþykktar um að þetta skuli gert, að hér skuli koma fram frv. til laga um tæknifrjóvganir. Þetta er náttúrlega afskaplega mikilvægt mál og mikilvægt að slíkt frv. komi vegna þess að það eru svo margir viðkvæmir hlutir sem þarna eru á ferðinni. Ef við nefnum bara fósturvísana. Hvernig er með fósturvísana sem eftir verða? Hvað má gera við þá o.s.frv. og eftir hve langan tíma á að fleygja þeim? Og fleira mætti nefna þannig að þetta er mjög mikilvægt mál sem ég vona sannarlega að komi hér hið fyrsta inn til þingsins í frumvarpsformi.