Einkavæðingaráform ríkisstjórnarinnar

20. fundur
Mánudaginn 25. október 1993, kl. 17:02:50 (586)


[17:02]
     Stefán Guðmundsson :
    Virðulegi forseti. Ég hélt ég hefði heyrt það rétt í máli hæstv. fjmrh. þegar hann sagði að það ætti að selja Búnaðarbanka Íslands. Þegar hann varð hins vegar var við það að við, eins og hann kallaði okkur, velunnarar Búnaðarbankans, báðum um orðið þá var eins og hann áttaði sig á því og fór að draga í land lítillega. En mig langaði aðeins til að fá upplýsingar hjá hæstv. fjmrh. vegna þess að það er svo stutt síðan hann gekk af landsfundi Sjálfstfl. Hver var landsfundarsamþykkt Sjálfstfl. um sölu á Búnaðarbankanum?