Einkavæðingaráform ríkisstjórnarinnar

20. fundur
Mánudaginn 25. október 1993, kl. 17:09:06 (591)


[17:09]
     Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (um fundarstjórn) :
    Virðulegi forseti. Ég skil nú ekki þessar athugasemdir sem hv. þm. er að gera. Rétt áðan lýsti hann því yfir að það væri skynsamlegt að fara eins og köttur í kringum heitan graut. Ég get ekki skilið hvernig menn geta gert það og setið á sama staðnum.