Skrifstofur heilbrigðismála

20. fundur
Mánudaginn 25. október 1993, kl. 17:48:15 (608)


[17:48]
     Jón Kristjánsson :
    Virðulegi forseti. Ég vil beina því til hæstv. heilbrrh. varðandi færslu verkefna á sviði heilbrigðismála til sveitarfélaga í ljósi yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar hvort sú vinna er langt komin í heilbrrn. að skilgreina verkefni sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva og hvernig þau verkefni eiga að flytjast til sveitarfélaganna. Hvar sú vinna er á vegi stödd?