Afbrigði um dagskrármál

22. fundur
Þriðjudaginn 26. október 1993, kl. 13:55:01 (645)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Þannig háttar til með tvö fyrstu dagskrármál þessa fundar að of skammt er liðið frá 2. og 1. umr. og þarf því að leita afbrigða um að þessi mál megi koma á dagskrá og til umræðu. Verður þeirra afbrigða nú leitað í einu lagi, þ.e. bæði varðandi 1. og 2. dagskrármálið.