Álit EFTA-dómstólsins um skýringu samnings um EES

23. fundur
Þriðjudaginn 26. október 1993, kl. 17:26:28 (683)

[17:26]
     Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar) :
    Frú forseti. Þetta ákvæði sem hv. 1. þm. Norðurl. v. vitnar hér til í 2. gr. frv. á sér þá eðlilegu skýringu að til þess að Félagsdómur geti með sama hætti og héraðsdómarnir leitað slíks álits þarf að taka það sérstaklega fram í lögum. Og eins og kunnugt er þá er úrskurðum eða dómum Félagsdóms ekki áfrýjað til Hæstaréttar.