[13:46]
Halldór Ásgrímsson :
Virðulegur forseti. Ég vildi beina máli mínu til hæstv. samgrh. Nú er það staðreynd að það verður fljótlega lagður virðisaukaskattur á flugfargjöld innan lands og á íslenska ferðaþjónustu. Það er vitað mál að þetta mun rýra samkeppnisstöðu flugsins og ferðaþjónustunnar mjög verulega þannig að þessi vaxtarbroddur í íslensku atvinnulífi mun trúlega lamast. Hæstv. samgrh. lýsti því yfir hér á Alþingi sl. vetur að þessa ákvörðun mætti endurskoða og hann taldi að það væri nóg komið af skattlagningu á þessa grein, sérstaklega eftir að hann fór í mjög lærdómsríka ferð til Egyptalands og kynnti sér þar ferðamál og var það vel að ráðherrann virtist hafa tekið nokkrum sinnaskiptum í þessu máli.
Nú vil ég spyrja hæstv. ráðherra um það á hvern hátt hann hafi undirbúið þetta mál, hvort þessi skattur verði lagður á um næstu áramót, m.a. með þeim afleiðingum að flugfargjald til Egilsstaða, svo dæmi sé nefnt, mun hækka um 2.000 kr., og er þó ærið hátt fyrir með þeim ójöfnuði sem þessu mun fylgja, og hvort hæstv. samgrh. muni á þeim stutta tíma sem eftir lifir í þessu máli beita sér fyrir því að þessari ákvörðun verði breytt eða einhverjar aðrar ráðstafanir verði gerðar í samræmi við orð hans oft í umræðum hér á síðasta þingi.