[15:23]
Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
Hæstv. forseti. Ég held ég þurfi að tala skýrar til þess að ummæli mín misskiljist ekki eins og stundum hefur komið fyrir þegar ég hef gert samgöngur fyrir Hvalfjörð að umræðuefni, kannski vegna þess að ég hef engu síður en hv. þm. farið oft fyrir þann fjörð. Það liggur auðvitað fyrir að verið er að bæta stórkostlega samgöngur frá Reykjavík til Vesturlands. Ef ekki kemur til jarðgangagerðar þá er óhjákvæmilegt að bæta veginn fyrir Hvalfjörð með öðrum hætti. Auðvitað er það alveg út í hött að láta sér detta í hug að ný bílferja verði keypt til þess að annast siglingar milli Reykjavíkur og Akraness samtímis því sem lagt verður í mikinn kostnað við að bæta veginn fyrir fjörðinn ef ekki kemur til jarðganganna. Þetta vita menn og ég held að það sé langbest að tala hreint út um það. Við erum ekki að tala um eitthvað sem gerist á þessu ári og eitthvað sem gerist á næsta ári. Það er yfirlýst af minni hálfu og ég held að aldrei hafi komið fram raddir um annað á Alþingi en að rekstur Akraborgarinnar haldi áfram þangað til jarðgangagerð lýkur undir Hvalfjörð.