[18:01]
Ólafur Þ. Þórðarson (andsvar) :
Herra forseti. Það kom fram stuttu eftir að ágætur þm., 3. þm. Reykn., kom á þing og settist inn í þingherbergi Sjálfstfl. að hann taldi að sín þekking sem dýralæknir kæmi þar verulega að gagni og ég hafði nú ekki hugmyndaflug til að átta mig á þessu með tangirnar fyrr en núna. En burt séð frá því tel ég ekki að það þurfi að endurskoða kosningalögin í Kanada. Ég tel að þau hafi sýnt með sanni að það á að skipta um ríkisstjórn með þessum hætti.