Árangur viðræðna við EB um landbúnaðarmál

27. fundur
Mánudaginn 01. nóvember 1993, kl. 17:36:31 (949)

[17:36]
     Björn Bjarnason :
    Frú forseti. Ég vil í þessu sambandi láta þess getið að þetta mál var rætt í utanrmn. Alþingis í morgun þar sem voru bæði fulltrúar utanrrn. og landbrn. og farið yfir þetta mál. Niðurstaðan þar er að sjálfsögðu í samræmi við það sem kom fram í máli landbrh. og ég tel að þar hafi menn litið þannig á að þetta mál væri komið í viðunandi farveg til úrlausnar miðað við þær óskir sem Íslendingar hafa sett fram í þessu máli og fram hafa komið í þessum viðræðum.