[15:43]
Steingrímur J. Sigfússon (andsvar) :
Hæstv. forseti. Þetta var hin furðulegasta ræða hjá formanni þingflokks Sjálfstfl. og í raun og veru hreinir útúrsnúningar af hans hálfu að reyna að halda því fram að það sé óeðlilegt að óskað sé upplýsinga hér, þegar til umræðu er frv. til laga um húsaleigu, um kjör leigjenda á íbúðarhúsnæði í landinu. Ég
hef aldrei heyrt svona málflutning og það af öllum mönnum frá formanni þingflokks og þingreyndum manni. Þetta er auðvitað hrein fjarstæða. Það er fullkomlega þinglegt og fyrir því löng og órofa hefð að óska upplýsinga um slík atriði þegar til umræðu er frv. um málefni hóps í þjóðfélaginu af þessu tagi. Það veit ég að fjölmargir hv. þm. hér inni geta staðfest. Þessi málsvörn hjá hv. 8. þm. Reykv. er því fyrir neðan allar hellur og hefði ræðan betur verið óflutt því í henni kom ekkert nýtt fram, engin svör. Hv. þm. gat að vísu staðfest það sem lá ljóst fyrir og kom fram í máli félmrh., að ríkisstjórnin hefur ekki komið sér saman um neitt í þessu máli, það er í uppnámi eins og fleira og engin svör þaðan að hafa. Hann bætti því að vísu við, svona til að undirstrika það, að hann væri ekki sammála áherslum hæstv. félmrh. í sambandi við húsaleigubætur. Þá vitum það og eru svo sem ekki miklar fréttir að ríkisstjórnin sé í mörgum pörtum hvað þetta snertir eins og fleira.
Ég tel, hæstv. forseti, að það sé fullkomlega þingleg og eðlileg ósk sem ég bar fram að það sé hægt að leggja spurningar fyrir hæstv. fjmrh. í þessari umræðu og komin fram ærin tilefni til. Ég ætla hins vegar ekki að hafa um það fleiri orð, ég set það í vald forseta og stjórnarliða sem hér eru að blanda sér í málin hvernig þeir vilja meðhöndla slíka ósk og tel mig ekki þurfa að rökstyðja hana frekar. Hún er þingleg, eðlileg og mundi fallast undir góðar samskiptavenjur hér, eins og þær a.m.k. tíðkuðust, að verða við henni.