[14:05]
Árni Johnsen (andsvar) :
Virðulegi forseti. Það er undarleg athugasemd hv. 5. þm. Suðurl. við orð hæstv. samgrh. varðandi hugsanlegan kostnað við byggingu jarðganga milli lands og Eyja og hins vegar Herjólf því það er alveg rétt eins og kom fram í máli hæstv. samgrh. að ef það lægi ljóst fyrir að það væri tæknilega hægt að byggja göng milli lands og Eyja, botngöng, þá mundi það kosta hlutfallslega, eins og ráðherrann orðaði það, mun minna en nýr Herjólfur. Herjólfur á að duga í 15--20 ár, göng ættu að duga margfalt lengur og stofnkostnaður við slík göng lægi einhvers staðar á bilinu 2--3 milljarðar samkvæmt samsvarandi göngum sem hafa verið byggð bæði í Japan og í Noregi við sams konar aðstæður. Það var líka undarlegt að heyra þingmanninn lýsa því yfir að jarðfræðilega væru aðstæður þær að ekki væri hægt að byggja undirgöng þarna. Það liggur ekkert fyrir um það, það er allt sem bendir til þess að það sé hægt. Ég minni á það að fyrir fáum árum flutti ég ásamt hæstv. samgrh. þáltill. um könnun á gerð jarðganga milli lands og Eyja. Þá var hv. þm. Guðni Ágústsson formaður allshn. og tók undir þessa tillögu, fagnaði henni og sagðist mundu fylgja henni eftir en stóð síðan fyrir því í þáverandi allshn. að svæfa málið. Það voru heilindi þingmannsins í könnun á þessari samgöngubót. Svo ærir hann hér óstöðugan og kemur með yfirlýsingar sem eru af hálfu fagmanna að gera en ekki óbreytts þingmanns Guðna Ágústssonar, sem hefur litla þekkingu á 40 faðma dýpi þó hans málflutningur komi ærið oft af mjög miklu dýpi.