[14:28]
Árni M. Mathiesen :
Hæstv. forseti. Það liggur við að maður sé feiminn að koma hér í ræðustól eftir svona heimspekilegar vangaveltur eins og farið hafa fram hér á milli hv. 2. þm. Vesturl. og hv. 3. þm. Vestf. Í lok andsvara sem fóru hér á milli okkar hv. þm. Guðna Ágústssonar áðan þá beindi hann því til mín að ég hlutaðist til um það við samgrh. að hann léti gera úttekt á reiðvegum og þörf á reiðvegum, eða nokkurs konar reiðvegaáætlun vænti ég að hafi verið í huga hv. þm. Ég hafði ekki tök á því að svara þar sem ég var búinn að tala tvisvar.
Það vill einmitt þannig til að það er verið að vinna slíka áætlun og það er verið að vinna þessa áætlun af hálfu Vegagerðar ríkisins, hverrar yfirmaður er hæstv. samgrh., og Landssambands hestamanna og Sigríður Sigþórsdóttir arkitekt, sem hv. þm. Guðni Ágústsson vitnaði í í sinni ræðu hérna áðan, er einmitt að vinna þessa áætlun á vegum þessara aðila. ( GÁ: Samkvæmt þingssamþykktum framsóknarmanna, er það ekki?)
Þingsályktun var samþykkt af þinginu veturinn 1990--1991 um það að gerð skyldi reiðvegaáætlun og er allt gott um þá þál. að segja, en í frv. sem fyrir þinginu liggur í dag er í fyrsta skipti gert ráð fyrir því og kveðið á um reiðvegaáætlun í vegalögum og finnst mér það vera allnokkurt spor í átt til þess sem ég veit að við hv. þm. Guðni Ágústsson viljum báðir að farið sé. Þess vegna verð ég að taka undir með hv. þm. Páli Péturssyni þegar hann setur ofan í við hv. 5. þm. Suðurl. að það sé ekki alveg rétt hjá honum að reiðvegir og reiðvegaáætlun hafi ekki náð eyrum löggjafarvaldsins.