[15:01]
Páll Pétursson (andsvar) :
Frú forseti. Ég er alveg á móti því að gera hestamenn eða hrossaeigendur réttlausa eða að einhverjum sérstökum blórabögglum sem geti borið eða eigi að bera þennan kostnað einir.
Auðvitað er hægt að kaupa tryggingar, skepnueigendur geta keypt tryggingar þannig að verði þeir fyrir því að keyrt sé á skepnur þeirra, þá er hægt að kaupa tryggingu þannig að þeir verði ekki fyrir fjárhagslegu tjóni. En ef menn fara að gera það, þá hækkar framleiðslukostnaðurinn, þá hækkar afurðaverðið o.s.frv.