Vegasamband hjá Jökulsárlóni

31. fundur
Þriðjudaginn 09. nóvember 1993, kl. 17:01:07 (1177)

[17:00]
     Einar Már Sigurðarson :
    Frú forseti. Í fjarveru hv. þm. Hjörleifs Guttormssonar mæli ég fyrir till. til þál. um aðgerðir til að tryggja vegasamband hjá Jökulsárlóni. Meðflm. að þessari tillögu eru hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon og Jóhann Ársælsson. Tillagan er svohljóðandi:
    ,,Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta hefja undirbúning aðgerða til að tryggja vegasamband á hringveginum hjá Jökulsárlóni í Austur-Skaftafellssýslu. Kostnaður við athuganir og aðgerðir í þessu skyni greiðist af óskiptu vegafé. Skilað verði skýrslu um málið til Alþingis fyrir 1. maí 1994.``
    Tillaga sama efnis var flutt á síðasta löggjafarþingi en varð þá ekki útrædd. Meginforsendur málsins eru óbreyttar og því er tillagan nú endurflutt.
    Miklar breytingar hafa orðið á afstöðu láðs og lagar við Jökulsárlón í Austur-Skaftafellssýslu. Strandlínan hefur færst inn sem nemur 700 m frá því í byrjun aldarinnar eða sem svarar 8,5 m á ári að meðaltali. Eru nú aðeins 300 m frá fjörubakka að

hengibrúnni á þjóðvegi sem byggð var á árunum 1966--1967 og var þá í um 500 m fjarlægð frá ströndinni. Ekki er að sjá að á þeim tíma hafi menn haft áhyggjur af strandlínunni. Það voru hins vegar heimamenn sem fyrstir vöktu athygli á því hve hraðfara breytingar eiga sér stað á svæðinu. Í janúar 1990 kynnti Fjölnir Torfason á Hala í Suðursveit, sem á hlut að ferðaþjónustu við Jökulsárlón, opinberum stofnunum niðurstöður af mælingum sínum á landbrotinu. En í bréfi sínu segir Fjölnir m.a., með leyfi forseta:
    ,,Í janúar 1990 gekk yfir landið mjög slæmt sunnan og suðvestanveður. Þetta sama veður gjörbreytti öllum aðstæðum á þessum stað til hins verra. Í þessu sama veðri gekk sjór yfir veginn austan Jökulsár á nokkrum kafla en þar sem vegurinn var harðfrosinn á þessum tíma stóð hann af sér þetta áhlaup.``
    Þáverandi samgrh. svaraði í framhaldi af bréfinu fyrirspurn um málið á Alþingi og beitti sér fyrir fyrstu aðgerðum. Síðan hefur Vegagerð ríkisins og fleiri fylgst með þróun á svæðinu og rætt hefur verið um hvernig eigi að bregðast við. Veglínan austan brúar hefur þegar verið færð til og er nú styst tæpa 140 m frá fjörubakka en var áður í 56 m fjarlægð. Þetta er þó ekki nema hluti vandans því breytingar hafa einnig orðið á inn- og útfalli úr jökullóninu, í raun mjög miklar breytingar enda er þar mikið vatn á ferð. Við óhagstæðar aðstæður, stórstreymi og brim, getur orðið hraðfara rof sem veikt getur undirstöður brúarinnar löngu áður en strandlínan hefur náð henni, sem líkur eru á að geti orðið á nokkrum áratugum.
    Jökulsárlón er nú orðið um 12,5 km 2 að stærð og fer stækkandi því Breiðamerkurjökull er stöðugt að hopa. Það hop orsakast ekki síst, að mati Helga Björnssonar jöklafræðings, vegna áhrifa lónsins á jökulinn. Mælingar á þykkt jökulsins hafa leitt í ljós að hann liggur í lægð sem er undir sjávarmáli á um 20 km vegalengd til norðurs. Fer dýpi vaxandi innan við núverandi jökulrönd og nær mest rúmlega 200 m undir sjávarmál. Ef jökullinn hyrfi væri þarna um 20 km langur og um 2--4 km breiður fjörður. Það er því ekki inni í myndinni að með áframhaldandi hopi jökulsins skapist aðstæður til brúargerðar norðan við núverandi jökullón.
    Með tillögunni er birt sem fskj. grein eftir Helga Jóhannesson, verkfræðing hjá Vegagerð ríkisins, en þar er að finna margvíslegan fróðleik og einnig eru reifaðar þar fyrstu hugmyndir um æskileg viðbrögð. Þá fylgir einnig tillögunni mynd af botni Breiðamerkurjökuls og nágrennis samkvæmt íssjármælingum Raunvísindastofnunar Háskóla Íslands.
    Nú er bætt við nýju fskj. sem er yfirlit frá Vegagerð ríkisins með niðurstöðum mælinga varðandi rof í árfarvegi og á ströndinni við útfall Jökulsár á Breiðamerkursandi.
    Þá er í öðru nýju fskj. að finna brot úr útboðslýsingu ásamt uppdrætti sem sýnir rofvörn sem unnið hefur verið að í árfarveginum í haust.
    Sveitarstjórnarmenn á Austurlandi hafa haft áhyggjur af ástandi mála við Jökulsárlón og á aðalfundi Sambands sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi í ágúst 1992 var lýst stuðningi við tillöguna. Á síðasta aðalfundi SSA í ágúst sl. var ályktað eftirfarandi um ótryggt vegasamband við Jökulsá á Breiðamerkursandi:
    ,,Aðalfundur SSA, haldinn á Breiðdalsvík 26. og 27. ágúst 1993, lýsir áhyggjum yfir því alvarlega ástandi sem gæti skapast vegna ágangs sjávar við brúna á Jökulsá á Breiðamerkursandi og minnir alþingismenn á samþykkt frá síðasta aðalfundi um þetta efni.``
    Hér er um stórt mál að ræða og því nauðsynlegt að tekið verði stefnumarkandi á því af hálfu þingsins. Lagt er til í tillögunni að kostnaður af væntanlegum aðgerðum verði greiddur af óskiptu vegafé vegna þess að um er að ræða samgöngur fyrir allt landið. Þetta varðar sérstaklega stærri aðgerðir en þetta snertir einnig allar bráðabirgðaaðgerðir sem nauðsynlegar eru.
    Ég legg til, virðulegi forseti, að tillögunni verði vísað til samgn. og vænti þess að málið fái góða og ítarlega meðferð. Ég efast ekki um að nefndin veiti málinu brautargengi og að eftir umfjöllun nefndarinnar komi málið til afgreiðslu svo fljótt sem verða má á þessu þingi.