Vegasamband allt árið milli Austurlands og Norðurlands

31. fundur
Þriðjudaginn 09. nóvember 1993, kl. 17:46:32 (1184)

[17:46]
     Egill Jónsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það er mér út af fyrir sig nýr lærdómur að heyra að þessi væntanlegi vegur muni liggja í 600 m hæð. Í öðru lagi sagði ég ekki að þingmannahópur,

hvorki einn né neinn, hefði tekið ákvörðunum þessa framkvæmd. Alla vega var það ekki þingmannahópur Austurlands nema að því er laut helst að Jökulsá á Dal því framkvæmdirnar sem eiga sér stað eða áttu sér stað í ár voru í Norðurl. e. og það er þá væntanlega sá þingmannahópur sem hv. 6. þm. Vestf. var að tala um.
    En það sem ég sagði hins vegar var að ákvörðunin var tekin við gerð og samþykkt núverandi vegáætlunar. Þess vegna er ég hissa á því að menn skuli koma af fjöllum þegar rætt er um þetta mál núna.