Vegasamband allt árið milli Austurlands og Norðurlands

31. fundur
Þriðjudaginn 09. nóvember 1993, kl. 18:10:05 (1192)

[18:10]
     Egill Jónsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það er rétt út af lántökunum sem hv. síðasti ræðumaður var að tala svo mikið um að ég vildi gjarnan minna á það að núv. ríkisstjórn hefur bæði ákveðið að taka lán, eins og hann sagði réttilega frá. Hún hefur líka ákveðið að nýta ekki lántökuheimild og hverfa frá því sem ákveðið var í sérstakri þingsályktun sem þessi hv. þm.

lagði fyrir, að Vestfjarðagöngin yrðu fjármögnuð að hluta til með lánsfé, sem yrði reyndar greitt upp á þremur árum af vegáætlun eftir að þessum framkvæmdum lyki. Svo það náttúrlega þurfti ekki að fara í smiðju til neins annars en hv. síðasta þm. til þess að fá fordæmi fyrir því sem hann er nú sérstaklega að gagnrýna en stóð sjálfur að á meðan hann var samgrh.