Vegasamband allt árið milli Austurlands og Norðurlands

31. fundur
Þriðjudaginn 09. nóvember 1993, kl. 18:13:49 (1194)

[18:13]
     Egill Jónsson :
    Virðulegi forseti. Ég þarf ekki að lengja þá umræðu. Það var afar mikilvægt að það skyldi koma fram hjá fyrrv. samgrh. að hann sæi ekkert því til fyrirstöðu að taka lán til vegaframkvæmda eins og núv. ríkisstjórn tók ákvörðun um og hafði reyndar fordæmi frá honum sjálfum til að fara eftir. Það eina sem út af stóð í þeim efnum var að ekki væri nógu mikið um það talað eða nógu skýrlega frá því sagt að þetta væri unnið fyrir lántöku. Þar sem ég hef fjallað um þessi mál þá hef ég ekkert verið að leyna því. Og ég get ekki séð að það sé neitt aðalatriði í sambandi við ákvörðun eins og þessa, að taka lán og flýta framkvæmdum, hvað þingmenn segja heima í kjördæmunum sínum á eftir. Aðalatriðið er verkið og framkvæmdin og að það geti orðið til góðs fyrir fólkið sem þarf að ferðast um þetta land.