Efnahagsaðgerðir vegna kjarasamninga

33. fundur
Fimmtudaginn 11. nóvember 1993, kl. 10:32:42 (1212)

[10:32]
     Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nál. vegna frv. til laga um efnahagsaðgerðir vegna kjarasamninga. Þetta eru bráðabirgðalögin svokölluðu frá því í sumar.
    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund fjölmarga aðila sem getið er í álitinu. Meiri hluti nefndarinnar leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt.