Efnahagsaðgerðir vegna kjarasamninga

33. fundur
Fimmtudaginn 11. nóvember 1993, kl. 12:18:05 (1233)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti taldi sig hafa svarað því áðan hver hennar skoðun er á þessu máli. En forseti mun að sjálfsögðu áskilja sér rétt til þess, eins og venjan er þegar þingmenn leggja fram frv., að skoða þau og gera athugasemd við þau ef talið er að frv. brjóti í bága við þingskapalög, og í þessu sambandi við 43. gr. Það á því ekki að vera nein hætta á því að það verði neitt slys í þeim efnum, því að sjálfsögðu hlýtur málið að verða skoðað þegar þar að kemur.