Tilkynning um dagskrá

33. fundur
Fimmtudaginn 11. nóvember 1993, kl. 12:21:01 (1235)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Hæstv. dómsmrh. hefur óskað eftir því að tekin verði saman til umræðu þau þrjú stjórnarfrumvörp sem eru undir fjórða dagskrárliðnum, þ.e. frv. um Hæstarétt Íslands, 196. mál, frv. um meðferð opinberra mála, 197. mál, og frv. um meðferð einkamála, 198. mál, og hefur forseti orðið við því ef engar athugasemdir koma fram við það.