Efnahagsaðgerðir vegna kjarasamninga

34. fundur
Fimmtudaginn 11. nóvember 1993, kl. 14:29:14 (1257)

[14:29]
     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég tel alveg ótvírætt að þó að brtt. yrði felld þá mundi það ekki breyta því að ef mál þetta kemur inn í öðru frv. tengt öðrum efnisatriðum og öðrum efnisþáttum, þá er það fullkomlega lögformlegt og fyrir því fjöldi fordæma.