[14:42]
Páll Pétursson (andsvar) :
Frú forseti. Ég vil út af orðum síðasta ræðumanns láta það koma fram að ég tel að þingheimur þurfi ekkert að vera ruglaður í þessu máli. Ef þessi brtt. verður felld í þinginu þá eru það ekki þingleg vinnubrögð að bera hana fram eða fella inn í frv. Það er ekki hægt að bera fram frv. með samhljóðandi ákvæðum, ef ríkisstjórnin kæmist á þá skoðun að þetta réttlætismál ætti að ná fram að ganga og bryti odd af oflæti sínu, þá yrði hún að umorða greinina a.m.k. og hún getur ekki afhent aflaheimildir Hagræðingarsjóðs án endurgjalds. Hún getur að sjálfsögðu afhent þær gegn einhverju vægu gjaldi, krónu eða einhverju þess háttar en það sem upp úr stendur að verði þessi brtt. felld hér, þá er ekki þinglegt að bera hana fram á sama þingi fellda inn í annað frv.