Tilboð ríkisstjórnarinnar í GATT-viðræðunum

35. fundur
Mánudaginn 15. nóvember 1993, kl. 15:07:59 (1290)


[15:07]
     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
    Hæstv. forseti. Það er ekki verið að breyta þeirri stefnu sem mörkuð var í janúarmánuði 1992 varðandi viðræður Íslendinga við GATT og tilboð það sem sent verður af okkar hálfu verður í samræmi við þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar sem þingið veit um og ég tel reyndar að hafi verið sæmileg sátt um hér á þinginu þannig að okkar tilboð verður í fullu samræmi við þá samþykkt.