Rannsókn á afleiðingum atvinnuleysis

36. fundur
Mánudaginn 15. nóvember 1993, kl. 16:40:19 (1338)

[16:40]
     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) :
    Virðulegi forseti. Vegna samþykktar Alþingis frá maí sl. hefur verið leitað álits og umsagnar ýmissa aðila varðandi þessa þáltill., m.a. ráðgjafarnefndar vinnumálaskrifstofu félmrn., Atvinnuleysistryggingasjóðs, menntmrn. og Þjóðhagsstofnunar. Á grundvelli álits og umsagna, m.a. þessara aðila, hefur verið unnin ítarleg greinargerð sem kynnt hefur verið í ríkisstjórn. Umrædd greinargerð er nú í prentun og verður

lögð fyrir Alþingi á næstu dögum.