[16:07]
Jóhann Ársælsson (andsvar) :
Virðulegur forseti. Ég fagna því að formaður nefndarinnar vill taka málið til ítarlegrar yfirferðar í nefndinni. Hann fjallaði um ýmsar greinar í frv. og skilgreindi m.a. 14. gr. þannig að hann teldi að þar væri á ferðinni mjög þöng skilgreining á því hvað væri hlutverk hafnanna eða skyld starfsemi. Það segir í 8. gr. að hafnir geti verið hluthafar í fyrirtæki sem tengjast starfsemi þeirra en síðan kemur í 14. gr. að tekjum og eignum hafnarsjóðs megi einungis verja í þágu hafnarinnar. Að það skuli vera skilgreint í frv. að undir þetta heyri fiskmarkaðir segir okkur að það hlýtur að liggja býsna nærri annarri starfsemi en fiskmörkuðum því hvers vegna skyldu menn tengja fiskmarkaðina frekar en fiskvinnsluna eða eitthvað annað sem tengist starfsemi sem nauðsynlega þarf á höfn að halda? Því skyldu menn ekki alveg eins geta skilgreint það sem eitthvað sem væri skylt starfsemi hafnarinnar sem hv. 4. þm. Norðurl. v. taldi upp áðan? Ég tel að það sé bitamunur en ekki fjár á því og menn þurfi að fara býsna varlega með þær skilgreiningar. En vegna þess að það er tekið sérstaklega fram að fiskmarkaðir eigi þarna heima þá held ég að það bjóði því heim að menn telja að ýmislegt annað komi til greina.
Ég vil svo til viðbótar spyrja hv. formann nefndarinnar hvort hann sé sammála því að ef einhverjir stofnuðu hlutafélag sem héti Skemmtibátahöfnin hf. og það væri eingöngu starfsemi sem tengdist einhverjum leikaraskap sem þar ætti heima og væri gróðafyrirtæki, að þetta fyrirtæki ætti samkvæmt þessu að vera undanþegið sköttum.