Pálmi Jónsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég vitna til þess að það er rekin starfsemi af þessu tagi. Það er ef ég man rétt skemmtibátaklúbburinn eða siglingaklúbburinn Snarfari í Kópavogi svo að dæmi sé tekið. Hann er rekinn þar án þess að þar sé um höfn að ræða og þar ofan í kaupið hafa þeir Kópavogsbúar sótt eftir því að fá viðurkennda höfn sem ekki hefur orðið. Þetta er grundvallaratriði að staðfesta reglugerð fyrir höfn til þess að hún fái viðurkenningu sem slík. Fyrirspurnir um það hvernig farið skuli með einhverja aðra starfsemi en fengið hefur slíka viðurkenningu er í raun og veru ekki mjög frjótt umræðuefni undir þessum lið.
Hafnalög
37. fundur
Þriðjudaginn 16. nóvember 1993, kl. 16:12:53 (1418)
[16:12]