[16:13]
Guðmundur Hallvarðsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég vildi aðeins byrja á því að leiðrétta hv. 2. þm. Norðurl. v., Pálma Jónsson, um það að sportbátaklúbburinn Snarfari er hér inn við Elliðaár í Reykjavík en ekki í Kópavogi. ( PJ: Þá biðst ég afsökunar á því.) Málið er það að hann kom hér inn á fjármögnunarkafla frv. og segir að hann hafi verið vandlega yfirfarinn og það efa ég ekki. Hins vegar þykir mér nauðsynlegt að minna á og sérstaklega beina því til formanns nefndarinnar að í þeim almenna samdrætti í þjóðfélaginu og í ljósi viðleitni hafna til lækkunar gjalda á útgerð og flutninga eru vandséð rök fyrir því að ríkisvaldið gangi fram með skattheimtu 25% vörugjalds og millifærslu fjármuna á þann hátt sem gerður er nú í óþökk hafna, viðskiptavina og síðast en ekki síst neytenda. Hvað svo sem má segja um framkvæmdir hafnanna og fjárþörf þeirra þá er það rangt að afla fjár til framkvæmda með þeim hætti sem hér er viðhafður. Það mundi vissulega breyta miklu og hafnir leggja sig væntanlega enn frekar fram um afslætti til viðskiptavina sinna ef ríkisvaldið gerði slíkt hið sama varðandi vörugjaldið. Og það mundi eins og ég sagði hér áðan síðast en ekki síst koma neytendum til góða í formi lækkaðs vörugjalds sem ég held að hvert og eitt heimili mundi fagna og vænti ég þess að hv. formaður nefndar íhugi það mjög vel með sjálfu sér næst þá sest er niður yfir þessi mál svo alvarleg og flókin sem þau eru og vandmeðfarin sem ég geri mér vissulega fulla grein fyrir.