Sturla Böðvarsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Í fyrsta lagi vil ég segja það að samkvæmt frv. þá er ekki gert ráð fyrir því að það sé nokkur minnsti munur á gjaldskrá hafna eftir því hvort þær eru í eigu sveitarfélaga eða hlutafélaga. Þetta svar vildi ég gefa hv. þm. varðandi það atriði. Ég hafði ekki gert ráð fyrir því að hefja umræðu um afkomu atvinnuveganna almennt en hins vegar vil ég segja að það er afskaplega mikilvægt fyrir sjávarútveginn, og á það vil ég leggja áherslu, að þjónusta hafnanna sé viðunandi og góð. Ég held að það sé m.a. lykill að góðri afkomu útgerðar að það sé viðunandi og góð þjónusta í höfnum landsins. Ég held að við getum bara litið dálítið aftur í tímann og skoðað hvernig þau mál hafa verið að þróast á undanförnum áratugum og hversu mikill munur er á því í dag að gera út frá þeirri hafnaraðstöðu sem víða er við landið og var, við skulum segja fyrir 25 árum, þegar hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson var að byrja sín afskipti af stjórnmálum. Ég er alveg sannfærður um að þingmaðurinn getur rifjað upp margar ræður frá þeim tíma þegar útgerðin var í hinum mestu vandræðum vegna þess að ekki var bærileg hafnaraðstaða við landið.
Varðandi það að hv. 2. þm. Vesturl. telji að ég vilji ekki hag sjávarútvegs og útgerðar sem mestan, þá er það hinn mesti misskilningur og ég vænti þess að hv. þm. hafi svo sannarlega komist að raun um það einhvern tíma þó síðar verði.