Vernd og veiðar á villtum fuglum og spendýrum

37. fundur
Þriðjudaginn 16. nóvember 1993, kl. 17:46:09 (1441)

[17:46]
     Pálmi Jónsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Um efnisatriði þessa frv. leyfi ég mér að vísa til ræðu minnar á 116. löggjafarþingi þar sem ég tók til máls um þetta mál. Í ræðu sinni áðan komst hæstv. umhvrh. svo að orði, hafi ég tekið rétt eftir: ,,Fram að þessu hafa selir verið utan ráðuneyta.`` Ber að skilja hæstv. ráðherra svo að nú séu selir komnir inn í ráðuneytið eða séu í þann veginn að komast þangað?