Samkomulag um GATT-samningana

38. fundur
Miðvikudaginn 17. nóvember 1993, kl. 13:42:27 (1467)

[13:42]
     Anna Ólafsdóttir Björnsson :
    Virðulegi forseti. Ég beini máli mínu til hæstv. utanrrh. og spurningin er einföld: Þótti hæstv. ráðherra ekki ástæða til þess að kynna það samkomulag sem varð milli hans og landbrh. um GATT-samningana fyrir utanrmn. áður en þetta tilboð var sent úr landi?