Eftirlit með innfluttu fóðri

38. fundur
Miðvikudaginn 17. nóvember 1993, kl. 13:49:11 (1474)

[13:49]
     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) :
    Hæstv. forseti. Mér þykja þetta athyglisverðar upplýsingar. Ég hygg að það sé rétt hjá mér að það er Rannsóknastofnun landbúnaðarins sem á að fylgjast með innflutningi á þessu fóðri og ég mun óska eftir því við þann mann sem fer með þær rannsóknir að setja sig í samband við hv. þm. til þess að hann geti gefið honum vísbendingu um það hvernig hægt sé að afla ítarlegra gagna og rannsókna á því efni sem hann hefur vakið máls á.