[14:08]
Kristinn H. Gunnarsson :
Virðulegi forseti. Hæstv. félmrh. hefur svarað því þannig, m.a. með samþykkt ríkisstjórnarinnar að vopni, að sveitarfélögin eins og þau eru í dag geti tekið við grunnskólanum þannig að það getur ekki verið að hér sé um að ræða fullyrðingu sem ráðherrann er sammála að öllu leyti. Og ég bendi á það líka hvað varðar kynningu á þessu máli af því að það kom fram í upphafi hjá ráðherra í svari við fsp. frá hv. 9. þm. Reykv. að í ákvæði laganna sem sett voru í vor þá eru það umdæmanefndirnar sem eiga að hafa kynningu á málinu með höndum, ekki samráðsnefndin svonefnd. Hún á bara að vera til ráðuneytis umdæmanefndum. En kynningin samkvæmt lögunum á að vera á höndum umdæmanefndar. Og hvers vegna í ósköpunum er verið að nota Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, peninga sem ættu að öðrum kosti ættu að fara til fámennara sveitarfélaga til þess að borga þetta starf? Það er verið að láta fámennu sveitarfélögin borga sjálf herkostnaðinn gegn sjálfum sér.