Flutningur verkefna til sýslumannsembættanna

38. fundur
Miðvikudaginn 17. nóvember 1993, kl. 15:08:37 (1500)

[15:08]
     Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar) :
    Frú forseti. Ég var aðeins að benda hv. þm. á það að þeir hv. þm. Alþfl. ættu að undirbúa komu sína á þingfundi betur vegna þess að formaður Alþfl. hefur ekki einasta lýst yfir stuðningi við þessa tillögu um sameiningu sýslumannsembættanna heldur sagt að þar væri hvergi nóg að gert og mætti spara meira. Og það er að þessu leyti sem ég var að benda hv. þm. á að þeir ættu að undirbúa komu sína á þessa fundi betur og alveg óþarfi að taka það óstinnt upp, það var í mjög góðri meiningu gert.